Skiptar skoðanir um leyfi til hvalveiða

Skoðanir eru skiptar um ágæti þeirrar ákvörðunar Bjarna Benediktssonar matvælaráðherra að heimila veiðar á langreyðum næstu fimm árin. Reglugerð þess efnis var gefin út í gær.
Bæjarráð Akraness hefur fagnað ákvörðuninni. Landvernd, Ungir umhverfissinnar og Náttúruverndarsamtök Íslands eru á meðal þeirra sem lýsa yfir furðu á henni og segja hana bera vott um valdníðslu. Þá hefur Dýraverndarsamband Íslands mótmælt leyfisveitingunni harðlega. og segja hana ótímabæra.
„Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands og Ungir umhverfissinnar lýsa yfir furðu sinni og vanþóknun á útgáfu hvalveiðileyfa af hálfu starfstjórnar. Með því er lýðræðinu ekki sýnd virðing og með útgáfu leyfisins er gengið gegn hagsmunum loftslags, náttúru og dýravelferðar.”
Í svipaðan streng hafa Hvalavinir, Samtök grænkera á Íslandi og Samtök um dýravelferð á Íslandi tekið.