Nýjar smá- og víðsjár hjá Hafró

Hafrannsóknastofnun hefur endurnýjað tækjakost sinn þegar kemur að smá- og víðsjáum. Tvær smásjár frá Medor og fjórar víðsjár frá Olympus voru keyptar að undangengnu útboði á evrópska efnahagssvæðinu. Fram kemur á vef Hafró að eldri tækjakostur hafi verið kominn verulega til ára sinna.
„Smásjárnar eru tvennskonar, þ.e. hefðbundin smásjá og viðsnúin smásjá eða það sem kallað er Inverted Microscope á ensku. Víðsjárnar eru allar af svipaðri gerð. Tvær víðsjár verða í rannsóknastofu Hafrannsóknastofnunar á Ísafirði, en hin tækin verða í i höfuðstöðvum stofnunarinnar að Fornubúðum í Hafnarfirði,” segir í frétt á vef Hafró.
Fram kemur að með hverri smá- og víðsjá fylgi myndavél sem sé nýlunda og styrki vísindastarfið mjög. „Báðar smásjárnar gefa möguleika á að skoða sýni með svonefndu Diffrential Interference Contrast (DIC) sem einnig er nýlunda við greiningar sýna hjá Hafrannsóknastofnun og ljóst að tækin eiga eftir að nýtast við rannsóknir á öllum fagsviðum og efla rannsóknir Hafrannsóknastofnunar.”
Á myndinni er Laure de Montety sjávarlíffræðingur við splunkunýja Olympus SZX16 víðsjá.