Tillaga að rekstrarleyfi í Seyðisfirði

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi vegna sjókvíaeldis Kaldvíkur hf. með allt að 10.000 tonna hámarkslífmassa af laxi. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar en mikil andstaða við eldið ríkir á meðal heimamanna. Hámark lífmassa af frjóum laxi má vera allt að 6.500 tonn, samkvæmt tillögunni en hún byggir á matsskýrslu frá árinu 2020 um 10.000 tonna laxeldi í Seyðisfirði.
Fram kemur að um sé að ræða ný rekstrarleyfi sem heimili annars vegar eldi á 6.500 tonn af frjóum laxi og hins vegar 3.500 tonn af ófrjóum laxi í Seyðisfirði. Burðarþolsmat Hafrannsóknastofnunar fyrir Seyðisfjörð geri ráð fyrir að hægt sé að vera með allt að 10.000 tonna lífmassa í eldi í firðinum. „Áhættumat erfðablöndunar Hafrannsóknastofnunar gerir hins vegar eingöngu ráð fyrir að hægt sé að vera með 6.500 tonn af frjóum laxi í firðinum og því eru tvö leyfi auglýst í samræmi við 2.mgr. 10.gr laga 71/2008 um fiskeldi.”
Í fréttinni kemur fram að framkvæmdin hafi farið í gegn um mat á umhverfisáhrifum í samræmi við 1. tl. í ákvæði til bráðabirgða í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og fer því um leyfisveitingar vegna framkvæmdarinnar eftir eldri lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is merktar 18081324. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 20. janúar 2025.
Mikill meirihluti íbúa Seyðisfjarðar eru mótfallin sjókvíaeldi í firðinum, samkvæmt könnunum.