Vélin í Ljósafelli komin í 200 þúsund stundir

Aðalvélin í Ljósafelli SU 70, sem sett var í skipið í nóvember 1988 í Póllandi, hefur verið keyrð yfir 200 þúsund vinnustundir. Frá þessu greinir á vef Loðnuvinnslunnar. Vélin er af gerðinni Niigata.
Bent er á að þetta jafngildi því að vélin hafi verið samfellt í gangi í 22 ár af þessum 36 síðan hún var sett í.
Högni Páll Harðarson var vélstjóri á Ljósfelli þegar vélin var sett um borð og hann svaraði aðspurður, á vef Loðnuvinnslunnar, að grunnhönnun vélarinnar væri mikilvægur þáttur, „Það er ekki allur búnaður byggður til að endast,“ sagði hann og bætti því við að góð umhirða, eftirlit og tímanlega útskipti á slithlutum væri mikilvægur þáttur fyrir heilsu véla.
Kristján Birgir Gylfason er yfirvélstjóri á Ljósafelli og hefur sömu sögu að segja varðandi vélina, þ.e.a.s. hún sé vel smíðaður gripur, „það eru allir íhlutir í þessari vél sverir og sterkir sem þýðir að þeir þola meira álag“ sagði Kristján Birgir. Hann sagði líka að vélin væri hönnuð til þess að ganga 310 snúninga en hann, og hinir vélstjórarnir, létu hana aldrei ganga meira en 280 snúninga.