Tryggja strandveiðar í 48 daga í sumar

Deila:

Strandveiðar verða tryggðar í 48 daga. Þetta kemur fram í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar, sem kynnt var á blaðamannafundi í Hafnarfirði í dag. Á fundinum sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og nýr fé­lags- og hús­næðismálaráðherra að það yrði gert strax í sumar. Í yfirlýsingunni á einnig að styrkja lagaumgjörð fiskeldis og innleiða hvata til eldis á ófrjóum laxi í lokuðum kvíum.

Í stefnuyfirlýsingunni segir:

Með því að ýta undir vöxt og verðmætasköpun í matvælaframleiðslu. Í sjávarútvegi verða gerðar auknar kröfur um gagnsæi í eignarhaldi og skerpt á skilgreiningu tengdra aðila. Ríkisstjórnin mun tryggja 48 daga til strandveiða […] Ríkisstjórnin mun styrkja lagaumgjörð fiskeldis til að sporna gegn neikvæðum áhrifum á lífríki og innleiða hvata til eldis á ófrjóum laxi og til eldis í lokuðum kvíum.

 

Deila: