Dagskrá mótmæla: Kári Stef og KK koma fram

Deila:
Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, mun halda tölu á mótmælum strandveiðimanna sem boðað hefur verið til á Austurvelli á laugardaginn. Strandveiðimenn mótmæla þar stöðvun veiðanna, en síðasti dagur strandveiða var 11. júlí að þessu sinni. Kári hefur áður hvatt sjómenn til byltingar.
Í færslu á síðu Strandveiðifélags Íslands leggur formaðurinn til að sjómenn mæti í sjóstökkum og leggi sig fram um að tryggja mannsæmandi strandveiðikerfi. Hann biður menn að forðast að persónugera vandann og leggja heldur áherslu á meginsjónarmiðið.
Strandveiðimenn munu hittast fyrir framan Hörpu klukkan tólf og ganga þaðan fylktu liði á Austurvöll. Dagskráin þar verður sem hér segir:
  • KK tekur nokkur vel valin lög
  • Kári Stefánsson heldur tölu
  • Kristján Torfi og trillukallakórinn spila
Deila: