Góður makríll til vinnslu

Deila:

Makríllinn sem skip Síldarvinnslunnar hafa fengið til vinnslu á Neskaupstað er góður til vinnslu. Nú er verið að vinna makríl úr Vilhelm Þorsteinssyni EA. Á vef Síldarvinnslunnar segir að fiskurinn sé að mestu heilfrystur.

„Gert er ráð fyrir að vinnslu úr Vilhelm ljúki um hádegisbil og þá verður hafist handa við að þrífa fiskiðjuverið eins og gert er með reglubundnu millibili á vertíðum. Barði NK mun síðan koma til Neskaupstaðar í dag með 1.340 tonna makrílfarm og mun vinnsla á honum hefjast strax að þrifum loknum í kvöld. Þá er Hákon EA að landa rúmlega 600 tonnum af frystum makríl í frystigeymslur Síldarvinnslunnar í dag,” segir í frétt á vef fyrirtækisins.

Þar er rakið að skipin sem landa hjá Síldarvinnslunni séu í veiðisamstarfi. Þau hafi togað 8-11 tíma í gær og afli þeirra hafi verið misjafn, eða frá 130 tonnum upp í 480 tonn. Alls hafi þúsund tonnum verið dælt í Barða í gærdag.

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, segir að fiskurinn, sem nú er verið að vinna úr Vilhelm, sé sá besti sem borist hefur á vertíðinni. „Í honum er lítil áta og hann er mjög gott hráefni. Þetta er besti farmurinn sem við höfum fengið til vinnslu á vertíðinni og erum við að heilfrysta á fullu. Það er átumagnið sem skiptir mestu. Þegar átan minnkar verður hráefnið betra. Vonandi verður þetta svona áfram,“ er haft eftir Geir Sigurpáli.

Deila: