Sakar forsvarsmann Vísis um hræðsluáróður

Deila:

Kjartan Páll Seinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands, sakar Pétur Hafsteins Pálsson, framkvæmdastjóra Vísis um hræðsluáróður þegar hann heldur því fram að 48 daga strandveiðar muni leiða til þess að flotinn veiði 15 þúsund tonnum meira en í sumar.

„Og þá átti eftir að reikna með tvennu. Annars vegar að bátum fjölgi verulega, þetta er bara opið kerfi fyrir alla og það má veiða alla þessa daga. Og hins vegar, er meira svigrúm vegna veðurs og svona, þannig að það verður miklu meiri nýting á dögunum,“ sagði Pétur í hádegisfréttum RÚV. „Þannig að þetta er risastór tékki sem er skrifaður, alla vega fimmtán þúsund tonna aukning. Og þá spyrjum við bara hvaðan er það tekið og það er að sjálfsögðu tekið af öðrum sjómönnum og öðrum fyrirtækjum.“

Kjartan Páll mótmælir þessu. „Að segja að það þurfi aukningu upp á sextán þúsund tonn, þetta bara meikar ekkert sens. Við fengum 48 daga bæði 2018 og 2019 og það var enginn 26 þúsund tonna afli sem að kom upp á sjó þau ár. Þannig að þetta er bara hræðsluáróður,“ segir Kjartan.

Kjartan Páll segist líka hugsi yfir þeim orðum Péturs sem heldur því fram að strandveiðarnar skili minni tekjum til ríkisins. Þvert á móti segir Kjartan Páll að samkvæmt tölum frá Hagstofunni og Fiskistofu fái strandveiðibátar um 20% hærra verð fyrir fiskin en stórútgerðin.

Deila: