Árangursríkt ár að baki hjá ALVAR Mist

Deila:

Árið 2024 var viðburða- og árangursríkt hjá fyrirtækinu ALVAR Mist sem sérhæfir sig í sjálfvirkri þokusótthreinsun fyrir matvælaiðnað. Fyrirtækið innleiddi sínar tæknilausnir hjá fyrirtækjum í fiskiðnaði á liðnu ári, bæði hjá nýjum viðskiptavinum og öðrum sem hafa nýtt sér tækni ALVAR Mist um árabil. Þá fékk fyrirtækið einnig útnefningu sem „Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri“ en það hefur á undanförnum árum aukið vöruframboð sitt í samstarfi við lykilviðskiptavini og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir búnað sinn og lausnir.

„Þessi viðurkenning staðfestir framúrskarandi vinnubrögð okkar, skuldbindingu við sjálfbærni og nýsköpun og hvetur okkur til að halda áfram að þróa lausnir sem standast auknar kröfur í matvælaiðnaði,“ segir Guðmundur Sigþórsson, framkvæmdastjóri ALVAR Mist.

Laxey og Fiskkaup í hóp viðskiptavina

Á árinu 2024 bættust fyrirtækin Fiskkaup og Laxey í hóp notenda búnaðar frá ALVAR. Laxey er sem kunnugt er að byggja upp landeldi í Vestmannaeyjum og er miðað við að framleidd verði 27.000 tonna á ári. Samkvæmt samkomulagi við fyrirtækið mun ALVAR setja upp sótthreinsikerfi sem tryggir alhliða hreinlæti og hindrar að skaðlegar bakteríur komist í afurðirnar.

Fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík er eitt það fullkomnasta í heimi. Þar setti ALVAR Mist upp nýtt kerfi á liðnu ári.

„ALVAR hefur sterkt orðspor og tækni þess er mjög virt í íslenskum sjávarútvegi. Skuldbinding okkar við sjálfbærni lýkur ekki þegar fiskurinn yfirgefur tankinn. Við kappkostum að hámarka hvern þátt í starfsemi okkar og lausnir ALVAR munu hjálpa okkur að ná því í vinnsluferlinu,“ segir Kristmann Kristmannsson hjá Laxey um gildi þeirrar lausnar sem ALVAR innleiðir í starfseminni.

Sem fyrr segir bættist fyrirtækið Fiskkaup einnig í hóp viðskiptavina ALVAR á árinu en Fiskkaup er leiðandi í ábyrgum fiskveiðum, leggur áherslu á sjálfbærni og notast eingöngu við línuveiddan fisk. Sótthreinsikerfið frá ALVAR mun tryggja skilvirka sótthreinsun á vinnslusvæðum fyrirtækisins og þannig auka matvælaöryggi og lágmarka umhverfisáhrif.

„Við hjá Fiskkaupum höfum alltaf lagt áherslu á að tryggja bæði gæði og sjálfbærni í allri okkar starfsemi. Lausnir ALVAR gera okkur kleift að halda þessum gildum í forgrunni allt frá veiðum til fullvinnslu afurða með háþróaðri tækni sem lágmarkar umhverfisáhrif og eykur öryggi afurða okkar,“  segir Guðjón Gunnlaugsson, framleiðslustjóri hjá Fiskkaupum.

Nýtt kerfi sett upp í vinnslu Samherja á Dalvík

Sjávarútvegsfyrirtækið Samherji hefur lengi verið  meðal helstu viðskiptavina ALVAR og náði árið 2024  stórum áfanga með innleiðingu á nýju ALVAR kerfi í vinnslustöð fyrirtækisins á Dalvík en húsið, sem er 9.000 fermetrar að strærð, er eitt fullkomnasta fisksvinnsluhús heims.
s„Kerfið frá ALVAR tryggir fullkomna sótthreinsun á örfáum mínútum með lágmarks notkun sótthreinsiefna og vatns. Samherji hefur nú fjárfest í fjölmörgum ALVAR kerfum sem hafa skilað framúrskarandi árangri í hreinlætis- og gæðastjórnun hjá félaginu,“ segir í frétt frá ALVAR.

Nýjungt í sótthreinsun kælibifreiða

Á árinu 2024 lauk ALVAR þróun á sótthreinsibúnaði fyrir kælibifreiðar. Kerfið er einstakt að því leiti að það nýtir affallsvatn kælieiningarinnar, sem er blandað sótthreinsiefni og tryggir þannig áhrifaríka sótthreinsun inni í rými kælibifreiðarinnar.

„Þessi vistvæna og hagkvæma lausn dregur úr sóun, minnkar rekstrarkostnað og stuðlar að betri nýtingu auðlinda. Nýjungin hefur þegar vakið athygli og hentar flutningsfyrirtækjum sem vilja bæta hreinlæti í matvælaflutningum og tryggja ferskari afurðir við afhendingu.“

Áhersla á nýsköpun og sjálfbærni

Á árinu 2024 hélt ALVAR áfram að þróa nýstárlegar lausnir sem styðja við sjálfbærni í matvælaiðnaði. ALVAR kerfin draga úr vatnsnotkun um allt að 90% og minnka efnanotkun um 70-80%, auk þess eru kerfin alsjálfvirk og spara því 20-25% launakostnað í samanburði við hefðbundnar handvirkar sótthreinsiaðferðir.  Kerfin hafa fengið frábærar viðtökur bæði innanlands og á alþjóðlegum markaði. Fyrirhuguð er uppfærsla á kerfunum sem mun styðja við aukna gagnaöflun sem gerir notendum kleift að halda ítarlega skrá yfir notkun og tryggja enn meiri sjálfvirkni.

„Viðskiptavinir ALVAR eiga það sameiginlegt að leggja metnað í að nota nýstárlegan tækjabúnað og uppfylla ströngustu gæðakröfur. ALVAR sótthreinsikerfin eru lykilþáttur í að styðja við þessi markmið með því að draga úr umhverfisáhrifum, auka hagkvæmni í rekstri, tryggja hreinustu afurðir og stuðla að aukinni sjálfbærni í sínum rekstri,“ segir Guðmundur Sigþórsson, framkvæmdastjóri.

„Við viljum þakka viðskiptavinum okkar, samstarfsaðilum og starfsfólki fyrir ómetanlegan stuðning og traust á árinu 2024. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og nýrra verkefna á komandi ári.“

Myndatexti:
Kristmann Kristmannsson, verkefnastjóri hjá Laxey í Vestmannaeyjum og Guðmundur Sigþórsson, framkvæmdastjóri ALVAR Mist, handsala samning um innleiðingu lausna Alvar í afurðavinnslunni hjá Laxey.

Deila: