Hafró vill ráða rannsakanda

Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða aðila við rannsóknir sýna og gagnavinnslu í starfsstöð stofnunarinnar í Hafnarfirði. Frá þessu er sagt á vef Hafró. Starfið felst að sögn í fjölbreyttri vinnu við öflun og úrvinnslu gagna í landi og í rannsóknaleiðöngrum á sjó.
Fram kemur um helstu verkefni og ábyrgð að aldursgreiningar nytjastofna, þátttaka í sýnatöku úr lönduðum afla nytjastofna, þátttaka í rannsóknaleiðöngrum á sjó, úrvinnsla sýna og önnur tilfallandi verkefni séu á dagskrá.
Óskað eftir eftir einstaklingi með háskólamenntun og eða starfsreynslu sem nýtist í starfi.