Laxey kaupir búnað af Marel

Deila:

LAXEY og Marel hafa skrifað undir samning um afhendingu á Marel vinnslu- og hugbúnaði fyrir væntanlegt sláturhús LAXEY fyrir landeldislax. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Laxeyjar. Þar segir að fyrirtækið stefni á að framleiða 32 þúsund tonn af laxi á ári og að með samningnum sé stórt skref tekið.

„Byggð hefur verið hátæknivædd seiðastöð sem er komin í fulla starfsemi og senn verður fyrsta áfanga áframeldisins í Viðlagafjöru fullkláraður. Fyrsti seiðaskammtur var einmitt fluttur í áframeldið í lok síðasta árs og er fyrsta slátrun áætluð haustið 2025. JBT Marel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir fiskvinnslu,” segir í fréttinni.

Fram kemur að öflugur búnaður skipti miklu máli til að uppfylla vaxandi kröfur markaðarins um sjálfbærni og hámarksnýtingu. Með nýju lausninni frá Marel fær LAXEY bæði nákvæma stærðarflokkun og tengingu við stafrænar lausnir Marel sem hámarka rekstrarhagkvæmni.

Samningurinn snýr að sögn að Smartline-flokkara og AXIN hugbúnaði Marel sem er notaður í fiskvinnslum um allan heim. Með AXIN hugbúnaðinum getur starfsfólk LAXEY stýrt vinnsluferlinu eftir upplýsingum sem kerfið aflar í rauntíma. Gerir hugbúnaðurinn starfsfólkinu þannig kleift að haga framleiðslunni á sem hagkvæmastan máta og jafnframt að bregðast skjótt við vandamálum sem kunna að koma upp. Lausnin mun auka nákvæmni í stærðarflokkun og styðja við rekjanleika, gæði og framleiðsluhagkvæmni en þetta eru allt lykilatriði í stefnu LAXEY um að vera leiðandi í sjálfbærum landeldislausnum.

“Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að hafa skýra yfirsýn yfir vinnsluna, góðan rekjanleika og geta þannig tryggt hagkvæmni í gegnum öll stig vinnslunnar,” er haft eftir Kristmann Kristmannssyni verkefnastjóri vinnslu og innkaupa hjá LAXEY.

Nánari upplýsingar má sjá hér.

Deila: