Vestfirska vorið á Flateyri

Deila:

Málþing sem ber heitið Vestfirska vorið verður haldið á Flateyri dagana 5. – 6. maí 2017, að Hafnarbakka 8, kaffistofu gamla hraðfrystihússins sem nú hýsir Ísfell hf.

Að málþinginu standa Perlur fjarðarins ehf. Flateyri, félagið Hús og fólk Flateyri og ýmsir heimamenn á Flateyri í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða, Fræðslumiðstöð Vestfjarða með styrk frá Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.

Markmið málþingsins er vekja athygli á vestfirsku samfélagi og málefnum dreifðra byggða á Íslandi. Heimamenn, fræðimenn og gestir munu skiptast á skoðunum í von um að umræða er tæki mið af reynsluheimi íbúa dreifðra byggða, þekkingu og sýn fræðimanna muni efla skilning á stöðu mála, viðfangsefnum og hugsanlegum úrræðum.

Fyrirlesarar verða Dr. Þóroddur Bjarnason, félagsfræðingur, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, Dr.Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingur, Jóns Sigurðssonar prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, Dr. Kristinn Hermannsson, hagfræðingur, lektor við Glasgow-háskóla, Skotlandi. Sæbjörg Freyja Gísladóttir, þjóðfræðingur, Flateyri, Kristján Torfi Einarsson, útgerðarmaður og sjómaður, Flateyri og Jóhanna G. Kristjánsdóttir menntunarfræðingur Flateyri.

 

Deila: