Osló: Lagt til að úthýsa botnlægum veiðarfærum

Tvær skýrslur voru á mánudag gefnar út um krítískt ástand lífríkisins í Oslóarfirði í Noregi. Allar líkur eru á að niðurstöður þeirra muni leiða til hertari reglna um veiðar í firðinum, svo um munar. Fiskeribladet fjallar um þetta. Þar segir að þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til hafi litlu skilað.
Oslóarfjörður er í suðaustur-Noregi. Hann skiptist í innri- og ytri-Oslóarfjörð. Borgin Osló er við botn þess innri. Inn úr ytri firðinum eru einnig firðirnir Drammenfjörður og Holmestrandfjörður.
Skýrslurnar, sem voru kynntar á mánudag, gefa til kynna að ástandið sé sérstaklega slæmt þegar kemur að þorski og öðrum tegundum bolfiska.
Loftlsags- og umhverfisráðuneyti Noregs sendi á mánudag frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt er að stjórnvöld séu að undirbúa hertari reglur þegar kemur að veiðum í firðinum. Fjölmargar tillögur hafa verið settar fram, sem fara í samráðsferli. Ein tillagan er sú að allar veiðar verði bannaðar á ákveðnum svæðum.
„Ástandið í firðinum sýnir að við þurfum að herða reglurnar. Ég veit að þessar tillögur munu hafa áhrif á margar fjölskyldur sem búa við fjörðinn. Við viljum þess vegna vinna þetta í náinni samvinnu við fagfólk og hagaðila. Í þessu máli þarf að hyggja að ýmsu,” er haft eftir ráðherranum Andreas Bjelland Eriksen.
Á löngum lista yfir tillögur, sem hægt er að taka afstöðu til til 22. apríl, er meðal annars að finna ákvæði um að banna togveiðar í firðinum, úthýsa botnlægum veiðarfærum, leggja frekari hömlur á skelfiskveiðar (rækju og humar) og banna veiðar skipa yfir 11 metrum. Síldveiðar verða bannaðar og sitthvað fleira.