Tillaga að 12.600 tonna eldi í Þorlákshöfn

Deila:

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Geo Salmo hf. vegna fiskeldis á landi vestan við Þorlákshöfn. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 12.160 tonna hámarkslífmassa vegna seiða- og matfiskeldis á laxi.

Framkvæmdin fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana að því er fram kemur á vef stofnunarinnar. Í fréttinni segir að hægt sé að skila athugasemdum til og með 20. febrúar.

Í tillögunni segir meðal annars að á gildistíma leyfisins skuli fara fram vöktun og rannsóknir af hálfu rekstrarleyfishafa til að meta vistfræðileg áhrif á nánasta umhverfi eldisstöðvarinnar.

„Varúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir að fiskur sleppi vegna eldis eða flutnings á fiski skulu vera skráðar og aðgengilegar hjá eldisaðila, og áætlun um aðgerðir til að endurheimta fisk sem sleppur. Leyfishafi skal sjá til þess að viðbragðsáætlun vegna stroks sé staðsett á eldissvæðinu og kynna starfsmönnum hana. Rekstrarleyfishafi sem missir fisk úr fiskeldisstöð, skal án tafar tilkynna slíkan atburð til Fiskistofu, Matvælastofnunar, sveitafélaga og næstu veiðifélaga.
Rekstrarleyfishafi ber skyldu til að halda skrá yfir uppruna eldislaxa sem byggir á gagnagrunni um erfðaefni hjá framleiðanda hrogna.”

Deila: