Gæslan hvetur til aðgátar

Landhelgisgæslan hvetur eigendur skipa og báta til að huga vel að þeim vegna þess veðurs sem gengur yfir landið. Þetta kemur fram á Facebook-síðu stofnunarinnar. „Þrátt fyrir að nú sé smástreymt má gera ráð fyrir að áhlaðandi vegna ölduhæðar geti haft áhrif í einhverjum höfnum og að þar geti myndast ókyrrð og súgur,” segir í færslunni.