Eskja hættir bolfiskvinnslu í Hafnarfirði

Deila:

Rekstrarfélag Eskju ehf., sem er dótturfélag Eskju hf. hefur selt bolfiskvinnslu félagsins að Óseyrarbraut í Hafnarfirði og hættir rekstri. Ástæða sölunnar er breytt rekstrarumhverfi í vinnslu á bolfiski og einnig breyttar áherslur í rekstri félagsins með tilkomu nýs uppsjávarfrystihúss á Eskifirði. Félagið mun í kjölfarið einbeita sér enn frekar að uppsjávarveiðum og vinnslu ásamt því að halda áfram frekari uppbyggingu á Eskifirði.

Kaupandi er Fiskvinnslan Kambur ehf. í Hafnarfirði sem mun flytja starfsemi sína í húsnæðið á næstu mánuðum. Þessar breytingar hafa í för með sér uppsagnir 20 starfsmanna hjá dótturfélagi Eskju hf.

 

Deila: