HB Grandi áformar að hætta botnfiskvinnslu á Akranesi  

Deila:

 

HB Grandi áformar að láta af botnfiskvinnslu á Akranesi og hefur hafið samráð við trúnaðarmenn stéttarfélaga starfsmanna vegna þessa og því sem það kann að þýða fyrir starfsfólk.Stefnt er að því að sameina botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi við vinnsluna í Reykjavík.

Á Akranesi starfa nú um 270 starfsmenn innan samstæðu HB Granda, þar af starfa 93 við botnfiskvinnsluna. HB Grandi rekur, auk botnfiskvinnslunnar, skipaverkstæði, fiskimjölsverksmiðju, loðnuvinnslu og tvö dótturfyrirtæki, Norðanfisk og Vignir G. Jónsson á Akranesi. Stefnt er að frekari uppbyggingu og eflingu þess rekstrar á Akranesi.

Í dag er hvorki hafnaraðstaða né aðstaða til vinnslu alls botnfiskafla ísfisktogara HB Granda á Akranesi en forsvarsmenn félagsins og Akranesbæjar eiga í viðræðum um mögulegar breytingar á því.

 

Deila: