1300 milljóna fjárfesting

Deila:

Arctic Fish hefur fest kaupa á nýjum umhverfisvænum fóðurpramma og eldisbúnaði fyrir litlar 1.300 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins á Facebook. Búnaðurinn er fyrir eldisstöðina í Hvannadal í Tálknafirði. Fyrirtækið hefur einnig samvið við Fjord Marinetime um rafhlöðu sem fer í borð í prammann og minnkar jarðefnaeldsneytisnotkun um 70%. Heildarfjárfestingin er eins og fyrr segir 1,3 milljarðar króna. „Allur þessi búnaður styður við stefnu félagsins um aukið öryggi starfsfólks, betri dýravelferð og minna álags á umhverfið,” segir í færslu fyrirtækisins.

Fóðurpramminn sem um ræðir er úr Aasgard línu Scale AQ og er sá fyrsti af þessari stærð sem félagið framleiðir. Hann getur tekið allt að 750 tonn af fóðri og getur fóðrað 8 kvíar samtímis, að því er fram kemur í færslunni.

 

Deila: