Vöktuðu sex leyfishafa vegna íshlutfalls

Deila:

Fiskistofa hefur birt niðurstöður eftirlits með endurvigtun með tilliti til íshlutfalls hjá þeim vigtunarleyfishöfum sem sættu eftirliti frá 1. janúar 2024.

Í fréttinni eru um skýrsluna eru niðurstöður ekki birtar heldur vísað í gögnin. Ekkert kemur fram um hvort eitthvað athugavert hafi fundist við eftirlitið.

Skýrslan ásamt leiðbeiningum um úrlestur á henni hefur verið birt hér á heimasíðunni undir liðnum tölulegar samantektir.” Erfitt er fyrir leikmann að átta sig á niðurstöðunum.

Fram kemur að fjöldi vigtunarleyfishafa á Íslandi sé nokkuð stöðugur. Árið 2024 hafi 79 haft leyfi til endurvigtunar en 17 leyfi til heimavigtunar.

„Séu veruleg frávik á íshlutfalli í afla skips miðað við meðaltalsíshlutfall skipsins í fyrri löndunum er Fiskistofu heimilt að fylgjast með vigtun hlutaðeigandi vigtunarleyfishafa í allt að sex vikur. 6 leyfishafar sættu 6 vikna eftirliti vegna frávika á íshlutfalli í fyrri löndunum áður en eftirlitsmenn Fiskistofu stóðu yfir endurvigtun.”

Myndin er úr safni.

Deila: