Komu með 7.400 tonn frá Færeyjum

Þessa dagana er verið að landa 7.400 tonnum af kolmunna í Neskaupstað úr fjórum skipum. Frá þessu segir á vef Sídlarvinnslunnar. Þar er rakið að Barði NK hafi komið með 1.350 tonn á þrijðudag, Vilhelm Þorsteinsson EA með 2.700 tonn í fyrradag en í gær hafi Beitir NK og Börkur NK komið með 1.400 og 2.000 tonn. Kolmunninn fékkst að sögn í færeyskri lögsögu, en veitt var suður af eyjunum á hinu svonefnda gráa svæði.
Samkvæmt upplýsingum frá skipstjórum kolmunnaskipanna hefur veiðin verið róleg að undanförnu og veður óhagstætt til veiða. „Þetta er búið að vera bölvað sarg,” er haft eftir Guðmundi Þ. Jónssyni, skipstjóra á Vilhelm. Í svipaðan streng tekur Þorkell Pétursson á Barða
Fram kemur að veðrið hafi verið svo slæmt um tíma að skipin hafi þurft að leita vars og bíða af sér mestu lætin.
Skipstjórar skipanna gera ráð fyrir að kolmunnaveiðum í færeyskri lögsögu sé lokið að sinni en nú verði haldið á miðin við Rockall.