Micro og Klaki sameinast

Ákveðið hefur verið að sameina hátkænifyrirtækin Micro og Klaka. Fram kemur í tilkynningu frá félögunum að bæði félögin hafi aukið veltu sína mikið á síðustu árum. Nýtt sameinað félag telji 50 starfsmenn en starfssemi félagsins verður til húsa að Einhellu í Hafnarfirði.
Óskar Pétursson, framkvæmdastjóri Klaka segir að samlegðin verði mikil og vörur fyrirtækjanna passi vel saman. „Við vinnum nú þegar á sama grunni þegar kemur að hugbúnaði og höfum unnið náið saman í talsverðan tíma. Þetta er skref sem allir munu njóta góðs af, jafnt starfsfólk sem kúnnar, þar sem við munum geta veitt enn betri þjónustu og haldið þróun áfram á fullu gasi.“
Haft er eftir Gunnari Óla Sölvasyni, framkvæmdastjóra Micro að sameiningin geri þeim kleift að koma betur til móts við viðskiptavini sína. „Sameinuð geta félögin tekið að sér fleiri og stærri verkefni og hækkað þjónustustigið. Með auknum umsvifum erlendis hefur þörfin aukist fyrir þjónustu á öllum tímum sólarhringsins. Viðskiptavinir félaganna tveggja koma úr matvælaframleiðslu, sjávarútvegi, fiskeldi, lyfjaiðnaði svo fátt eitt sé nefnt og við stefnum á að veita þeim geirum framúrskarandi þjónustu áfram.“
Mynd: Gunnar Óli Sölvason framkvæmdastjóri Micro og Óskar Pálsson framkvæmdastjóri Klaka við tilefnið.