Viðar til Wisefish

Deila:

Viðar Engilbertsson hefur verið ráðinn sem sölustjóri Wisefish. Hann mun stýra sölustarfi félagsins og styðja við áframhaldandi sókn þess á bæði innlenda og erlenda markaði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Wisefish. Wisefish er leiðandi í viðskiptalausnum fyrir aðfangakeðju sjávarútvegs- og eldisfyrirtækja, að því er segir í tilkynningunni.

Á heimasíðu wise.is segir: „Wisefish er sérsniðin hugbúnaðarlausn fyrir sjávarútveginn og þjónustar fjölda fyrirtækja innanlands sem utan. Kjarninn í lausninni er að halda utan um rakningu og kostnað sjávarafurða frá veiðum til neytenda. Lausnin hjálpar notendum að taka bestu ákvörðun á hverjum tíma til að hámarka arðsemi og gera áætlanir.”

Fram kemur í tilkynningunni að Viðar hafi stundað meistaranám í markaðsfræði- og alþjóðaviðskiptum og sé með meistaragráðu í líffræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur víðtæka reynslu úr sjávarútveginum og hefur meðal annars starfað hjá Skaginn 3X, Samtökum fyrirtækja í Sjávarútvegi (SFS) og síðast sem sölu- og markaðsstjóri hjá Vélfagi.

„Það er mér sönn ánægja að taka þátt í þessari vegferð sem Wisefish er á og fá að styðja við sókn fyrir þessar einstöku lausnir. Fyrirtækið hefur undanfarin ár fjárfest í mikilli vöruþróun, meðal annars glænýja eldislausn sem við kynnum til leiks á næstu misserum sem mun gera eldisfyrirtækjum kleift að fá fjárhagslega yfirsýn og rekjanleika fyrir alla virðiskeðjuna, allt frá hrognum til loka afurðar. Wisefish er með ríkjandi markaðshlutdeild hér heima og teljum við að við erum með mikil sóknartækifæri á erlendum mörkuðum.“ er haft eftir Viðari.

„Við erum virkilega ánægð með að fá Viðar til liðs við núverandi starfsfólk sem býr yfir áratuga reynslu. Virðiskeðja sjávarafurða getur verið afar flókin en hlutverk Wisefish er að einfalda líf viðskiptavina með yfirsýn sem skilar sér í aukinni hagkvæmni, betri ákvörðunartöku ásamt því að standast markaðskröfur um gæðavottanir, rekjanleika og sjálfbærni. Með góða innsýn í markaðinn og skýran fókus á okkar sérstöðu, er ég sannfærður um að Viðar mun hafa jákvæð áhrif á fyrirtækið og styðja enn frekar við vöxt félagsins” segir Siggeir Örn Steinþórsson framkvæmdastjóri vörustýringar, sölu og markaðsmála Wisefish.

 

 

Deila: