Tvær atvinnuvegasýningar í Laugardalshöll í haust

Undirbúnngur stendur nú sem hæst fyrir tvær atvinnuvegasýningar sem sýningarfyrirtækið Ritsýn efnir til í Laugardalshöll í haust.
Annars vegar er sýningin Sjávarútvegur/Iceland Fishing Expo 2025 sem haldin verður dagana 10.–12. september og hins vegar Iðnaðarsýningin 2025 sem haldin verður réttum mánuði síðar, dagana 9.–11. október.
Sýningarnar verða í Laugardalshöll sem er eina sérhannaða sýningar- og íþróttahús landsins. Samkvæmt upplýsingum frá Ritsýn hefur fyrirtækið þegar tryggt sér rými fyrir sýningarhald sitt í Laugardalshöll á næstu fjórum árum enda aukin ásókn sýnenda ár frá ári.
Vaxandi áhugi meðal fyrirtækja
„Við finnum mikinn og vaxandi áhuga hjá fyrirtækjum og er greinilegt að það er mikil þörf fyrir sýnendur að hitta gamla og gjarnan nýja viðskiptavini,“ segir Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri Ritsýnar ehf.
Hann segir sýningarnar hafa stækkað og eflst.
„Eftir því sem samskipti verða á margan hátt ópersónulegri á tímum gervigreindar þá sannast æ betur að ekkert jafnast á við bein og milliliðalaus samskipti.
Okkar sérstaða hjá Ritsýn er sú að sýnendur fá fría boðsmiða, eins marga og hentar til að bjóða gestum. Þannig nær sýnandinn betur til markhópsins og gestir verða jákvæðari og áhugasamari að mæta á sýninguna.
Það hefur aldrei verið eins mikill áhugi fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum að taka þátt í sýningum og í ár.“
Fjölbreyttar sýningar í 28 ár
Ritsýn ehf. hefur haldið fjölbreyttar fagsýningar á Íslandi í 28 ár og segir Ólafur að gildi slíks vettvangs í kynningu og markaðssetningu fyrirtækja sé óumdeilt.
„Við höfum staðið fyrir fjölbreyttum sýningum meðal annars á sviði heilsu, fjármála, flutninga, stóreldhúsa, landbúnaðar, sjávarútvegs og iðnaðar. Það er ánægjulegast við þessar sýningar hversu sterk tengsl virðast gjarnan myndast milli sýnandans og gamalla og nýrra viðskiptavina,“ segir hann.
Sjávarútvegur og iðnaður í brennidepli
Sýningarnar í haust eru báðar í þessum anda. Sjávarútvegur/Iceland Fishing Expo verður nú haldin í fjórða skipti og Iðnaðarsýningin í annað skipti.
„Á sýningunni Sjávarútvegur/Iceland Fishing Expo verða allar tegundir af fyrirtækjum sem þjóna íslenskum sjávarútvegi. Jafnan hafa fyrirtæki notað tækifærið til að kynna nýjungar sem hafa vakið mikla athygli og svo verður vafalaust einnig nú.
Sýningin spannar mjög vítt svið hvað varðar hátæknibúnað fyrir veiðar og vinnslu og svo er fiskeldið líka að koma sterkt til leiks á Íslandi.“
„Við höldum Iðnaðarsýninguna núna í annað skipti í samvinnu við Samtök Iðnaðarins. Á henni verður sem fyrr lögð áhersla á mannvirkjagerð, orku, innviði, vistvænar lausnir, hönnun og hugbúnað. Iðnaðarsýning hefur verið einstaklega vel sótt líkt og sjávarútvegsýningarnar.“
Allar upplýsingar um sýningarnar tvær má finna á heimasíðu Ritsýnar.