Aflaskráningu lýkur á hafnarvog

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. Þar er lagt til að aflaskráningu strandveiðibáta verði lokið á hafnarvog. Með þeirri breytingu muni endurvigtunum fækka um þúsundir árlega með minni líkum á mistökum við innslátt upplýsingum. Þá mun breytingin einnig draga verulega úr möguleikum á rangri skráningu á ís í afla.
Breytingin er eftirfarandi: Á eftir 3. mgr. 11. gr kemur ný málsgrein svohljóðandi „Allan strandveiðiafla skal vigta á hafnarvog. Vigtarmaður skal draga 3% frá vegnum afla vegna áætlaðs íss í afla eftir að hafa gengið úr skugga um að aflinn sé ísaður“.
„Rúmlega helmingur allra landana dagróðrabáta kemur frá strandveiðiflotanum, í framhaldi af reynslu af breytingunni verður skoðað hvort ástæða sé til að ljúka allri vigtun dagróðrabáta á hafnarvog við löndun.
Breytingin er mikilvægt skref til að auka traust, trúverðugleika og öryggi í fiskveiðistjórnun og muni stuðla að hagkvæmari ferlum við skráningu sjávarafla,” segir í samráðsgáttinni.