Ráðherra mætir á ársfund SFS

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra mun ávarpa ársfund Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem fram fer 4. apríl næstkomandi. Ráðherra mun svo ásamt þingmanninum Sigurjóni Þórðarsyni, þingmanni Flokks fólksins, Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins og Guðmundi Ara Sigurjónssonar, þingmanni Samfylkingarinnar, taka þátt í pallborðsumræðum.
Fundurinn er haldinn í skugga boðaðs lagafrumvarps um breytingar á veiðigjaldi. SFS hefur fundið frumvarpinu flest til foráttu.
Fram kemur í fundarboðinu að fundurinn sé opinn öllum. Hann fer fram í Silfurbergi í Hörpu og hefst kl. 13.