Svandís lengir umsagnarfresti

Deila:

Frestur til að senda inn umsagnir eða ábendingar um frumvarp Svandísar Svavarsdóttir matvælaráðherra um lagareldi hefur verið framlengdur til og með 10. janúar 2024. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins en stuttur umsagnarfrestur hafði verið gagnrýndur. Þar segir líka að umsagnarfrestur í samráðsgátt vegna sjávarútvegsstefnu og frumvarps til laga um sjávarútveg verði einnig framlengdur til 10. janúar 2024.

Í frumvarpinu um lagareldi eru lögð til ný heildarlög um sjókvíaeldi, landeldi og hafeldi. Markmið frumvarpsins er að skapa lagareldi á Íslandi skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi. Einnig er lögð áhersla á að lagareldi verði stjórnað út frá skilgreindum mælikvörðum sem komi í veg fyrir að greinin hafi neikvæð áhrif á umhverfi sitt, hvort sem er á vistkerfi eða villta stofna. Að auki verði dýravelferð og sjúkdómavarnir með besta hætti á heimsvísu.

Frumvarpið má sjá hér á samráðsgátt.

Deila: