Góð veiði línuskipanna

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, ásamt togaranum Jóhönnu Gísladóttur GK, hafa öll landað afla síðustu daga eftir veiðar á ólíkum miðum. Frá þessu er sagt á vef Síldarvinnslunnar.
Páll Jónsson landaði um 80 tonnum í Grindavík á mánudaginn. Benedikt Jónsson skipstjóri var nokkuð sáttur við ferðina og sagði aflann að mestu langa, en aðeins um 14 tonn hafi verið þorskur. Þeir hafi byrjað veiðarnar í Grindavíkurdýpisbotni í austanfræsingi en fært sig svo austur að Surtsey, lagt á Stórahrauni og síðan vestur fyrir eyjuna. Benedikt nefndi að yfirleitt væri góð þorskveiði á þessum tíma árs á þessum slóðum en nú hefði verið lítið um hann þar. Hins vegar væri mjög góð þorskveiði upp við landsteina, og áhöfnin væri ánægð með aflann.
Jóhanna Gísladóttir landaði fullfermi á Djúpavogi á sunnudaginn. Smári Rúnar Hjálmtýsson skipstjóri sagði að veiðar hefðu gengið mjög vel í Lónsbugtinni þar sem fullfermi fékkst á innan við tveimur sólarhringum, mest þorskur og ýsa. Skipið hafi strax farið aftur út á sömu slóðir í góðu veðri.
Sighvatur GK landar 96 tonnum í Grindavík í dag. Óli Björn Björgvinsson skipstjóri sagði að þeir hefðu byrjað í Grindavíkurdýpisbotni með fremur litlum árangri og því fært sig á Eldeyjarbankann þar sem aflinn varð betri eftir tvær lagnir. Þá hafi þeir farið yfir á Skerið, þar sem afli varð blandaður, áður en síðasta lögn var aftur tekin á Eldeyjarbankanum. Þorskur hafi verið rúmur helmingur aflans auk þess sem fengist hafi langa, keila og ýsa. Skipið fer aftur til veiða í kvöld.