Saka stjórnvöld um svíkja stjórnarsáttmála

Deila:

„Þegar rýnt er í þessar 60 bráðabirgðatillögur má hins vegar átta sig á hvernig þær yfir höfuð komust á blað. Þarna er einfaldlega búið að taka saman sarp hugmynda úr ýmsum áttum. Tillögurnar allar eru síðan ýmist til frekari umræðu eða útfærslu – hvað svosem það kann að þýða. Og því miður virðist þetta flest án nokkurs samhengis við hið skýra markmið sem sett var fram í stjórnarsáttmála.”

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í pistli Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sem birtur er á vef samtakanna. Þar rekur Heiðrún að í stjórnarsáttmála hafi verið boðað að meta skyldi þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins. Sérstök nefnd hafi átt að bera saman niðurstöðuna hér á landi og erlendis. Hún ætti að leggja frma tillögur til að hámarka möguleika Íslendinga til frekari árangurs og samfélagslegrar sáttar.

Heiðrún Lind bendir á að þessu hafi ekki verið fylgt eftir. „Þrátt fyrir skort á þessum grundvallaratriðum í vinnu sem ætlað er leiða okkur fram veginn, þá hafa 60 bráðabirðgatillögur litið dagsins ljós. Velta má fyrir sér, hvernig unnt er að gera tillögur á hinum ýmsu sviðum tengdum sjávarútvegi þegar enn hefur ekki verð metið hver ávinningur núverandi kerfis er og hvar við stöndum í samanburði við aðra? Hvernig vitum við hvað þarf að bæta ef engin er úttektin á stöðunni í dag og enginn er samanburðurinn við það sem aðrar þjóðir eru að gera?” spyr framkvæmdastjórinn.

Fyrir vikið sé hvorki hægt að hafa vissu né hugmynd um að umræddar tillgur muni auka hinn þjóðhagslega ávinning af nýtingu auðlindarinnar. „Í þessu samhengi er líka merkilegt að lesa nýlega grein matvælaráðherra, sem virðist líta svo á að það mikilvægasta sé að „upplifun“ almennings af grunnatvinnuvegi þjóðarinnar sé betri. Í heilli grein um þessar bráðabirgðatillögur er hvergi talað um miklar tekjur sem sjávarútvegur hefur skapað íslensku þjóðinni og íslenskum stjórnvöldum í formi skatttekna, sem hafa lagt grunn að þeim lífsgæðum sem við búum við. Það er eins og það skipti engu máli í hinni pólitísku mynd. Óljós upplifun virðist einfaldlega skipta meira máli en verðmætasköpun og sá hagur sem vel rekinn sjávarútvegur færir þjóðinni.”

Pistilinn í heild má lesa hér.

Deila: