119 þúsund tonn á land í september

Deila:

Landaður afli í september 2023 var 119,3 þúsund tonn sem er 1% minni afli en í september á síðasta ári að því er fram kemur á vef Hagstofunnar. Botnfiskafli var 32 þúsund tonn sem er 12% samdráttur á milli ára. Uppsjávarafli var rúm 85 þúsund tonn og jókst um 4%.

Heildarafli á 12 mánaða tímabiliinu frá október 2022 til september 2023 var 1.368 þúsund tonn sem er 10% minni afli en landað var á sama 12 mánaða tímabili árið á undan.

 

Deila: