160 eldislaxar hafa veiðst í 44 ám

Deila:

Eldislaxar hafa veiðst í 44 ám/veiðivatni og 161 lax má rekja til slysasleppinga í Patreksfirði, þegar þetta er birt. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar.

Stofnunin hefur staðfest eldisuppruna 164 laxa með útlits- og erfðagreiningu. Að meðtöldum þeim 27 eldislöxum sem greint var frá í fréttatilkynningu 19. september síðastliðnum. Aðeins tveir laxar með möguleg ytri eldiseinkenni reyndust villtir íslenskir laxar (einn úr Mjólká í Arnarfirði og einn úr Hólsá/Rangám á Suðurlandi), að því er fram kemur í fréttinni.

„Af 164 eldislöxum hefur verið hægt að rekja 161 til slysasleppingar í Patreksfirði sem tilkynnt var MAST í ágúst á þessu ári. Ekki var hægt að rekja þrjá eldislaxa til þessa atburðar. 

Hafrannsóknastofnun hafa borist alls 306 laxa til greiningar og á eftir að erfðagreina 142. Sú vinna fer nú fram á Matís.

Hafrannsóknastofnun eru enn að berast meintir eldislaxar til greiningar. Hafrannsóknastofnun þakkar veiðimönnum sem skilað hafa fiskum til greiningar og áréttar mikilvægi þess til að fá sem besta mynd af umfangi eldislaxa í ám og dreifingu þeirra.

Meðfylgjandi mynd og tafla sýnir dreifingu eldislaxa sem veiðst hafa og stöðu greiningar. Númer á myndinni vísa í töflu fyrir myndina þar sem finna má nánari upplýsingar um staðsetningu og fjölda fiska.”

 

Staðsetning (nr. á mynd) Samtals í greiningu Staðfestir eldislaxar Greiningu ólokið
Vesturland
1. Hvítá 1 1
2. Álftá 1 1
3. Hítará 1 1
4. Haffjarðará 2 2
5. Holtsá 1 1
6. Haukadalsá 1 1
7. Svínafossá 1   1
8. Laxá í Dölum 9 4 5
9. Krossá 1 1
10. Búðardalsá 8 2 6
11. Staðarhólsá/Hvolsá 10 10
Vestfirðir (að Ströndum)
12. Þorskafjarðará 1 1
13. Móra 3 3
14. Vatnsdalsá 3 1 2
15. Örlygshöfn 4 4
16. Suðurfossá 5   5
17. Patreksfjörður/Ósá 6 6
18. Sunndalsá 20 7 13
19. Dynjandisá 1 1
20. Mjólká 2 2
21. Laugardalsá 2 2
22. Ísafjarðará 21 15 6
23. Langadalsá 9 6 3
24. Hvannadalsá 3 1 2
25. Selá 2 2
Strandir og Norðurland
26. Kjósará 1 1
27. Staðará 6 6
28. Víðidalsá 2 2
29. Hrútafjarðará 38 7 31
30. Síká 6 6
31. Miðfjarðará 26 16 10
32. Tjarnará 3 1 2
33. Hóp 1 1
34. Víðidalsá 3 1 2
35. Vatnsdalsá 18 12 6
36. Blanda 55 44 11
37. Héraðsvötn 2 2
38. Húseyjarkvísl 4 3 1
39. Laxá á Refasveit 15 5 10
40. Hjaltadalsá/Kolka 2 1 1
41. Eyjafjarðará 1 1
42. Fnjóská 2 2
Suðurland
43. Geirlandsá 1 1
44. Kálfá 2 1 1
Deila: