Ráðstefna um sjálfbærni í fiskeldi

Deila:

Matís stendur fyrir ráðstefnu um sjálfbærni í fiskeldi á Grand Hótel í Reykjavík frá 8.30 til 16.00, miðvikudaginn 11. október. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Sérstök áhersla verður lögð á nýtingu hliðarstrauma og sjálfbær fóður. Hliðarstraumar eru þau nýtanlegu verðmæti sem til falla við framleiðslu í formi hráefnis, orku eða úrgangs.

Eftirtaldir sérfræðingar frá Norðurlöndunum á sviði fullnýtingar, sjálfbærni og nýrra innihaldsefna í fóðri munu halda erindi.

  • Friederike Ziegler frá RISE í Svíþjóð fjallar um umhverfisáhrif fiskeldis.
  • Sveinn Agnarsson frá Sjókovin og Háskóla Íslands ræðir hagrænar áskoranir og stefnumörkun í tengslum við notkun nýpróteina í fiskafóður.
  • Rasa Slizyte frá Sintef í Noregi, Paul Morris frá Mowi Feed, Heikki Keskitalo frá EnferBio í Finlandi og Jana Pickova frá SLU í Svíþjóð fjalla um mismunandi ný innihaldsefni í fóðri.
  • Pavle Estrajher frá Arctic protein fjallar um áskoranir sem fylgja 100% nýtingu á tilfallandi hliðarstraumum í eldi.
  • Gunnvør á Norði frá Fiskaaling í Færeyjum fjallar um mögulega nýtingu sameldis á bláskel og fiskeldis sem mótvægisaðgerð til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum.
  • Rúnar Þórarins frá Jarðlífi segir frá notkun hliðarstrauma úr landeldi til framleiðslu á lífdísel.
  • Frá Nofima í Noregi kemur Runar Gjerp Solstad og fjallar um mögulega nýtingu laxablóðs.
  • Frá fyrirtækinu Bioretur kemur Hermund Ramsøy og fjallar um hringrásarhagkerfið og nýtingu fiskeldismykju.
  • Sumhesh Sukumara frá Biosustain í Danmörku fjallar um verðmæt lífefni.
  • Danielle Neben frá Unbroken fjallar um leið fyrirtækisins að þróun fæðubótarefna úr laxi og hvað fyrirtækið hefur lært af þeirri vegferð.

Fram kemur að Ísland fari með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár og hafi meðal annars lagt áherslu á málefni hafsins, sjálfbærni og orkuskipti í sjávarútvegi. Ráðstefnan sé hluti þeirrar vinnu og sé ætlað að auka norrænt samstarf á þessum sviðum.

Ráðstefnan er öllum opin. Skráningargjald er 5.000 kr og eru veitingar innifaldar. Einnig verður streymt frá ráðstefnunni, skráning í streymi hér.

Skráning á ráðstefnuna fer fram hér, dagskrá má sjá hér.

Deila: