Verðlaunakokkar heimsóttu Vinnslustöðina

Deila:

Þrír verðlaunahafar í matreiðslumkeppnum kokkaskóla í Suður-Evrópu heimsóttu Vinnslustöðina á dögunum til að kynna sér vinnslu saltfisks. Þetta kemur fram í umfjöllun á vef Vinnslustöðvarinnar. Þar segir að kokkarnir eigi það sameiginlegt að vera hrifnir af íslenska saltfisksnum. Gestirnir voru Diego Antonio Chavero Rosa frá Spáni, Gonçalo Pereira Gaspar frá frá Portúgal og Francisco Orsi frá Ítalíu og komu hingað til lands ásamt kennurum sínum.

Fram kemur að ferðina hafi þeir unnið í sigurlaun og að þeir hafi komið í fylgd Bjögvins Þórs Björgvinssonar og Kristins Björnssonar frá Íslandsstofu. Hópurinn hafi skoðað saltfiskvinnslu fyrirtækisins og hafi sömuleiðis farið um borð í Breka VE til að komast enn nær uppruna vörunnar.

Á vef Íslandsstofu er haft eftir Orsi: „Það er okkur mikil ánægja að heimsækja ykkar fallega land og að kynnast uppruna fisksins, sem við þekkjum svo vel. Vonandi getum við miðlað og skilið eftir eitthvað af okkar matreiðsluhefðum í leiðinni.”

Á vefnum segir að efnt hafi verið til matreiðslukeppni í ríkjunum þremur sem hluta verkefnis Íslandsstofu, Bacalao de Islandia, og þar kemur Menntaskólinn í Kópavogi einnig við sögu. Þetta var nú gert í þriðja sinn og saltfiskkeppnin hefur þannig haslað sér völl sem fastur liður í starfi kokkanemanna suður þar í álfunni.

Nánari umfjöllun má lesa hér.

Myndin er fengin af vef Vinnslustöðvarinnar.

Deila: