„Það skemmtilegasta sem ég geri“

„Ég er í það minnsta ekki búinn að eyða peningunum sem ég mun fá á strandveiðunum í ágúst,“ segir útgerðarmaðurinn Rögnvaldur Björnsson á Raufarhöfn. Röggi, eins og hann er iðulega kallaður hefur stundað strandveiðar undanfarin tvö sumur og fer núna inn í sitt þriðja sumar.
Óhætt er að segja a hann sé hóflega bjartsýnn á að stjórnvöld standi við að leyfa strandveiðar í 48 daga – kannski hræða sporin. „Ég spái því að við verðum stoppaðir af 10. júlí eins og undanfarin tvö ár. Ég er frekar bjartsýnn að eðlisfari en það er svo mikil herferð í gangi gegn þessum áformum að ég held að það verði erfitt að synda í gegn um hana.“
Eftirvæntingin hjá strandveiðimönnum er jafnan mikil fyrir hverja vertíð. En Röggi hefur í ár enn meiri ástæðu til þess að hlakka til . Í vetur festi hann kaup á nýjum bát. „Þetta er mátturinn og dýrðin,“ segir hann glaðbeittur, aðspurður hvernig bát hann hafi fengið sér. „Þetta er sómi 695, dekkaður og með lest. Þetta er skip í samanburði við baðkarið sem ég var á áður,“ bætir hann við. Hann kemur sex körum í lest og báturinn gengur a.m.k. 25 mílur.
Nánar er rætt við Rögnvald í nýju tölublaði Ægis.