Fiskistofa setur nýjar gagnasíður í loftið

Deila:

Fiskistofa segir í dag frá því að nýjar gagnasíður hafi verið settar í loftið, en það hefur staðið til síðan fyrir áramót. Fram kemur að á síðunum sé leitast til að birta gögn Fiskistofu með aðgengilegum og skýrum hætti þannig að auðvelt verði að sækja gögn til að búa til skýrslur eða vinna áfram. Hægt er að fara inn á gagnasíðurnar á forsíðu vefs Fiskistofu.

„Gagnasíðurnar eru enn í þróun og mun Fiskitstofa leitast við að auka þjónustu við notendur með því að auka birtingu gagna á næstu misserum. Fiskistofa vonar að nýjar gagnasíður verði notendun til gagns og gamans. Allar ábendingar um það sem vel er gert eða betur má fara má senda á fiskistofa@fiskistofa.is.”

Deila: