Gervigreind hjá Síldarvinnslunni

Dagana 12.–14. maí stóð Síldarvinnslan fyrir námskeiði um notkun gervigreindar í samstarfi við Austurbrú og ráðgjafafyrirtækið Javelin AI. Námskeiðið var haldið í Neskaupstað og var vel sótt af starfsfólki skrifstofu fyrirtækisins, stjórnendum vinnslustöðva og iðnaðarmönnum.
Kennari á námskeiðinu var Pétur Már Sigurðsson frá Javelin AI, fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði gervigreindar og gagnavísinda. Áherslan var lögð á hagnýtingu gervigreindar við dagleg verkefni frekar en tæknilegan bakgrunn hennar. Þátttakendur lærðu meðal annars að nota verkfæri eins og ChatGPT við skjalagerð, upplýsingagjöf, ákvarðanatöku og stefnumótun.
Viðbrögð þátttakenda voru afar jákvæð, en þeir töldu námskeiðið mikilvægt og gagnlegt. Sérstaklega var nefnt hversu vel hefði tekist til að gera fræðsluna skilmerkilega og skýra. Þá var bent á mikilvægi þess að skilja bæði möguleika og takmarkanir gervigreindarinnar, og áhugi var mikill á framtíðarmöguleikum hennar.