Mannbjörg við Rif

Mannbjörg varð þegar lítill fiskibátur strandaði við grjótgarðinn utan við höfnina á Rifi snemma í morgun. Neyðarkall barst rétt um fjögurleytið og brugðust björgunarskipin Björg og Lífsbjörg frá Rifi hratt við. Skipverjanum var bjargað heilu og höldnu í land og fór hann til skoðunar á heilsugæslu.
Talsvert af lausamunum úr bátnum fór í sjóinn og var báturinn hálfsokkinn þegar björgunarmenn hófu verðmætabjörgun. Búið var að hreinsa svæðið á sjöunda tímanum í morgun og báturinn skilinn eftir við grjótgarðinn.