Hvetur til hreinlætis og góðra starfshátta

Deila:

Matvælastofnun (MAST) minnir á mikilvægi matvælaeftirlits í skipum og bátum í upphafi strandveiðivertíðar 2025. Eftirlitið miðar að því að tryggja heilnæmi og geymsluþol fisks og fiskafurða með áherslu á hollustuhætti um borð og meðferð afla.

Eftirlitið felur í sér úttektir á búnaði, hreinlæti, vinnufatnaði, umbúðum og aðskilnaði matvæla frá tækjum eða efnum sem geta mengað þau. Einnig er framkvæmt skynmat og hitastig afla við löndun skoðað.

Frá árinu 2015 hefur MAST sinnt reglubundnu eftirliti með bátum og skipum sem landa ferskum afla í höfnum landsins. Tíðni eftirlits fer eftir stærð skips:

  • 0–15 brt.: á þriggja ára fresti

  • 15–250 brt.: annað hvert ár

  • 250–1000 brt. og stærri: árlega

Undanfarin fimm ár hafa verið framkvæmdar 885 eftirlitsheimsóknir í 688 skip/báta, þar sem einungis voru gerðar athugasemdir við tæp 2% skoðunaratriða.

MAST leggur áherslu á að eigendur og áhafnir skipa og báta fylgi leiðbeiningum um góða starfshætti og hreinlæti til að tryggja öryggi matvæla og heilnæmi sjávarafurða

Deila: