Fiskeldiskvíar úr endurunnu nyloni

Deila:

Nýlega tók norska fiskeldisfyrirtækið Grieg Seafood í notkun tvær fiskeldiskvíar sem eru alfarið framleiddar úr endurunnu nyloni. Þetta er í fyrsta sinn sem slík tækni er innleidd án þess að fórna gæðum efnisins.

Verkefnið er hluti af nýsköpunarverkefninu Circular Fish Farming Nets (CFFN), sem unnið er í samstarfi við Hampiðjuna, Nofir, AKVA Group, Aquafil og Grieg Seafood, með stuðningi frá Umhverfissjóði Verslunarinnar í Noregi (Handelens Miljøfond). Markmið verkefnisins er að sýna fram á að hágæða endurunnið nylon, svokallað ECONYL®, geti komið að fullu í stað nýs efnis, sem dregur verulega úr umhverfisáhrifum og úrgangsmyndun.

Hingað til hefur verið erfitt að endurvinna nylon úr fiskeldisnetum án þess að tapa gæðum og styrkleika efnisins. Með CFFN verkefninu tekst hins vegar að nýta aflögð fiskeldisnet frá viðskiptavinum Hampiðjunnar til framleiðslu á nýju, jafnsterku efni.

Georg Haney, umhverfisstjóri Hampiðjunnar, segir að þessi þróun sendi mikilvæg skilaboð til fiskeldis- og sjávarútvegsgeirans um að efnafræðileg endurvinnsla nylons sé raunhæfur kostur sem geti verulega dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda og komið í veg fyrir að nylon endi í urðun eða brennslu.

Dótturfélög Hampiðjunnar, Hampiðjan Baltic, Mørenot Baltic, Vonin Lithuania og Vonin Refa, tóku öll þátt í að gera þetta framtak mögulegt með sérhæfðri þekkingu sinni á framleiðslu og samsetningu fiskeldisbúnaðar.

Hampiðjan Group vinnur stöðugt að því með samstarfsaðilum sínum að finna lausnir fyrir endurvinnslu efna í fiskeldi og sjávarútvegi, þar sem ekki aðeins nylon heldur einnig PE, PP, gúmmí og málmar eru send í endurvinnslu.

Deila: