Hvetur Íslendinga til að banna hvalveiðar

Deila:

Stórleikarinn Leonardo DiCaprio hvetur á Instagram íslensk stjórnvöld til að banna alfarið hvalveiðar. Hvalveiðibannið sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra lagði á í sumar rennur út um mánaðamótin. Í dag bárust fregnir af því að hvalveiðiskip hafi þegar lagt úr höfn til að leita að langreyðum.

DiCaprio bendir í færslu sinni á að hvalveiðibannið sé að renna út. „Íslenska ríkisstjórnin ætti að styðja vilja meirihluta Íslendinga sem vill núna stöðva hvalveiðar að eilífu,“ skrifar hann.

DiCaprio hlekkjar á grein Guardian um hvalveiðar Íslendinga.

Deila: