Veiðigjaldið ráðist af gerði veiðarfæra

Deila:

Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur lagt fram tillögu um að veiðigjald fyrir þorsk taki mið af gerð veiðarfæra. Í umsögn sinni um frumvarp atvinnuvegaráðherra um veiðigjald leggur LS til að veiðigjald verði lægra fyrir þorsk sem veiddur er með umhverfisvænni veiðarfærum, svo sem handfærum, línum og netum, sérstaklega þegar veiðarnar eru stundaðar af dagróðrabátum. Þeir leggja til 55% afslátt af veiðigjaldi fyrir slíkan afla.

Markmið LS með þessari tillögu er að hvetja til umhverfisvænni veiðiaðferða og stuðla að sanngjarnari gjaldtöku gagnvart minni útgerðum. Þeir benda á að Hafrannsóknastofnun hafi lýst því yfir að það sé ekki hlutverk stofnunarinnar að hlutast til um það í hvaða veiðarfæri veitt er, heldur að gefa stjórnvöldum ráðgjöf um heildarafla. LS telur því mikilvægt að stjórnvöld taki frumkvæði í að hvetja til notkunar umhverfisvænni veiðarfæra með því að veita afslátt af veiðigjaldi fyrir slíkan afla.

Þessi tillaga LS er sett fram í ljósi fyrirhugaðra breytinga á lögum um veiðigjöld, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir hækkun veiðigjalda og breytingum á afsláttarkerfi. LS leggur áherslu á að slíkar breytingar verði nýttar til að styðja við umhverfisvænar veiðiaðferðir og tryggja að minni útgerðir verði ekki hlutfallslega illa settar vegna hækkunar veiðigjalda.

Deila: