Fisk vantaði í vinnsluna

Deila:

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK kom til löndunar í Grundarfirði í dag. Að sögn Einars Ólafs Ágústssonar skipstjóra var þörf á fiski í vinnsluna í Grindavík, sem varð til þess að skipið snéri heim eftir einungis einn og hálfan sólarhring á veiðum.

„Við fengum boð um að koma inn með aflann til að halda vinnslunni gangandi, sem er eðlilegt. Við vorum að veiðum í góðu veðri vestur í kanti og uppi á Barðagrunni, og það gekk bara þokkalega vel. Aflinn er um 35 tonn, að mestu leyti þorskur,“ segir Einar Ólafur.

Strax eftir löndun var haldið aftur til veiða og stefnan tekin á sömu miðin.

 

Deila: