60 ára sjómannsferill á enda

Páll Halldórsson hefur látið af störfum sem skipstjóri á togaranum Páli Pálssyni ÍS 102 hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvör, eftir tæplega 60 ára farsælan sjómannsferil. Páll kom í land úr sínum síðasta túr þann 10. júní og lauk þar með löngum og farsælum starfsferli, þar sem hann hefur meðal annars stýrt núverandi Páli Pálssyni frá árinu 1993. Frá þessu er greint á vef Hraðfrystihússins Gunnvör.
Páll er fæddur og uppalinn í Hnífsdal og á djúpar rætur í sjómennsku og útgerð á svæðinu. Föðurafi hans, útvegsbóndinn Páll Pálsson í Hnífsdal, er nafni skipsins til heiðurs, og hóf Páll sinn eigin sjómannsferil aðeins fimmtán ára gamall árið 1965 – einmitt á skipi sem bar sama nafn.
Á löngum ferli sínum hefur Páll siglt víða, lengi sem stýrimaður og skipstjóri á skuttogaranum Gylli ÍS 261 á Flateyri, áður en hann tók við Páli Pálssyni núverandi. Hann hefur notið virðingar sem fiskinn og traustur skipstjóri og segist nú stíga sáttur frá borði eftir sex áratugi til sjós. „Þeir eru með númerið mitt,“ segir hann þó kíminn og útilokar ekki að taka einn og einn túr ef þörf krefur.
Stjórnendur og starfsfólk Hraðfrystihússins-Gunnvarar þakka Páli fyrir dygga þjónustu og traust samstarf í gegnum árin.
„Páll hefur sannarlega verið einn af máttarstólpum samfélagsins okkar, fyrir það ber að þakka,“ segir í yfirlýsingu frá fyrirtækinu.