Hafna ásökunum um óeðlileg afskipti

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna umræðu um meðferð frumvarps um breytingu á lögum um veiðigjöld. Í yfirlýsingunni segir að við gerð frumvarpsins hafi verið haft náið samráð milli ráðuneytanna, Fiskistofu og Skattsins. Samráðið hafi snúist um útfærslu gjaldanna og hvernig þau skuli reiknuð.
Við meðferð frumvarpsins hjá atvinnuveganefnd Alþingis hafi komið í ljós að ekki hafi verið samræmi í þeim útreikningum sem lögð voru fram til að meta áhrif breytinganna. Mismunandi forsendur og ólík gögn hafi verið notuð, og í sumum tilvikum hafi vantað nauðsynlegar upplýsingar frá Fiskistofu, sem leiddi til rangra niðurstaðna.
Í kjölfarið unnu ráðuneytin og viðkomandi stofnanir að því að tryggja sameiginlegan skilning á aðferðafræði útreikninganna. Niðurstaða Skattsins, sem byggir á þessum samræmda skilningi, var síðan send atvinnuveganefnd og nýtur stuðnings allra viðkomandi aðila.
Meirihluti atvinnuveganefndar hefur í kjölfarið lagt til breytingar á frumvarpinu til að skýra forsendur útreikninganna og taka af öll tvímæli í þeim efnum.
Í yfirlýsingunni hafna ráðuneytin jafnframt ásökunum sem fram hafa komið í opinberri umræðu um að reynt hafi verið að afvegaleiða löggjafann eða hafa óeðlileg afskipti af sjálfstæðum stofnunum. Slíkar ásakanir séu teknar alvarlega og þeim vísað alfarið á bug.