Fiskibát komið til hafnar eftir bilun í stýri

Deila:

Björgunarbáturinn Fiskaklettur úr Hafnarfirði var kallaður út í morgun þegar lítil fiskibátur lenti í vandræðum eftir bilun í stýrisbúnaði.

Aðstoðarbeiðnin barst rétt upp úr klukkan átta í morgun og var áhöfn Fiskakletts þegar kölluð út.

Um hálf tíu var björgunarbáturinn kominn að bátnum, sem þá var staddur rétt norður af Syðra Hrauni í Faxaflóa. Taug var sett á milli báta og siglt með fiskibátinn til hafnar.

Fiskaklettur kom með bátinn til Hafnarfjarðar í hádeginu, þar sem hægt var að landa þeim afla sem var um borð.

Meðfylgjandi mynd er frá skipunum, þegar þau komu til hafnar.

Deila: