Mikið um að vera hjá Vísisskipunum

Það er ekki slegið slöku við hjá áhöfnum Vísisskipanna um þessar mundir. Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði um 35 tonnum í Bolungarvík á sunnudaginn. Skipið var að veiðum djúpt á Halanum þegar það var kallað inn til löndunar vegna þess að fisk vantaði til vinnslu í vinnslustöðvum Vísis í Grindavík.
„Það var haldið út strax eftir löndun og stefnan tekin í Þverálinn,“ sagði Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri. „Þar var hörkuveiði og er Jóhanna Gísladóttir að landa fullfermi í Grundarfirði í dag. Aflinn er mest þorskur.“
Línuskipið Páll Jónsson GK landaði 78 tonnum í Grindavík á mánudag. Jónas Ingi Sigurðsson skipstjóri var sáttur við túrinn og sagði: „Þetta var vikutúr hjá okkur en stímið var býsna langt. Við byrjuðum á Ingólfshöfðanum og fengum þar keilu en þar gerði skítaveður þannig að við fórum austur að Hrollaugseyjum og þar fengum við þokkalega blöndu af fiski; ýsu, steinbít og þorsk. Síðustu dagana vorum við í fínasta veðri og ekki yfir neinu að kvarta.“
Að sögn Jónasar hélt Páll Jónsson til veiða á ný um kvöldið og var stefnt að því að fá góða fiskblöndu í túrnum. Ekki má vera of mikill þorskur.
Línuskipið Sighvatur GK landaði 83 tonnum í Grindavík á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Óli Björn Björgvinsson skipstjóri sagði að aflinn hefði verið ágætur og sérstaklega ánægjulegt væri að keila hefði verið rúmlega helmingur hans.
„Þegar farið var út var hreinlega dýrvitlaust veður en brátt lægði og það var algjör blíða þegar á leið. Við hófum veiðar í kantinum austan við Kötlugrunn og síðan færðum við okkur vestur eftir honum en lagnirnar voru fjórar og hálf í túrnum. Það verður haldið út til veiða á ný fljótlega að löndun lokinni,“ sagði Óli Björn.