Makrílveiðar hafnar hjá Samherja

Deila:

Uppsjávarskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA 11, sigldi frá Akureyri í gærkvöld til makrílveiða og bætist þannig í hóp fyrstu íslensku skipanna sem hafa hafið veiðar á árinu. Heildarkvóti íslenskra skipa í makrílveiðum er um 125 þúsund tonn og á Vilhelm Þorsteinsson þar um 14 þúsund tonna hlut.

Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri segir að von sé á fleiri skipum á næstu dögum og að vertíðin hefjist þá af fullum krafti. Hann reiknar með að halda til Smugunnar, þar sem makrílveiðar hafa oft reynst árangursríkar. „Siglingin þangað tekur um einn og hálfan sólarhring, og það skiptir miklu að hafa öflugan flota við slíkar aðstæður,“ segir Guðmundur.

Skip Samherja og Síldarvinnslunnar hafa undanfarin ár unnið náið saman á miðunum og safnað afla saman í eitt skip til að tryggja ferskleika hráefnis og nýta burðargetu skipanna sem best. Guðmundur segir að þessi samvinna hafi skilað góðum árangri og stuðlað að auknum verðmætum.

„Markmiðið er alltaf að hámarka verðmæti aflans. Ég er þokkalega bjartsýnn á komandi vertíð, þótt upphaf hennar sé gjarnan háð nokkurri óvissu. Það hefur ekki breyst með árunum,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson, skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA 11.

Deila: