Minni stuðningur við veiðigjaldafrumvarp

Stuðningur við frumvarp atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra um hækkun veiðigjalda hefur minnkað samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Þó er enn meirihluti landsmanna hlynntur frumvarpinu. Heldur hefur dregið úr almennum stuðningi við frumvarpið. Harðar deilur eru á þinginu um frumvarpið en stjórnarandstaðan hefur rætt málið dögum saman. Maskína greinir frá þessu.
Frumvarpið hefur verið til umfjöllunar á Alþingi síðustu vikur og hafa þingumræður um málið tekið rúmlega 71 klukkustund – sem gerir þær að níundu lengstu þingumræðum frá sameinuðu þingi árið 1991.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gagnrýnt vinnubrögðin og kallað eftir ítarlegri skoðun á málinu, á meðan þingmenn stjórnarflokkanna hafa lagt áherslu á að ljúka afgreiðslu þess sem fyrst og verja það sem mikilvægan liður í réttlátri auðlindanýtingu.
Mikill munur er á stuðningi við frumvarpið út frá stuðningi við stjórnmálaflokka.