Loðnuvinnslan kaupir uppsjávarskip

Deila:

Skrifað hefur verið undir kaup LVF á uppsjávarskipinu Asbjørn HG-265 frá Danmörku og sölu á Hoffelli. Bæði skipin eru komin í slipp í Noregi. Asbjørn er 14 ára gamalt, 9 árum yngra en Hoffell. Afhending fer fram á næstu dögum.

Nýtt Hoffell er með 2.530 m3 lest á móti 1.650 m3 í eldra skipi og er 53% stærra, skipið er með 8.100 hestafla vél á móti 5.900 hestöflum og togkraftur er 40% meiri. Mjög góð aðstaða er fyrir áhöfn. „Ljóst er að þessi kaup er mikið framfaraspor fyrir Loðnuvinnsluna og byggðarlagið. Þetta er nauðsynleg breyting þar sem lengra er að sigla á makrílmiðin en áður og langt að sækja síld, kolmunna og loðnu til hrognatöku,“ segir í frétt frá Loðnuvinnslunni.

Hoffellið kveður heimahöfnina á Fáskrúðsfirði í síðasta sinn.
Deila: