Hækkandi gengi Síldarvinnslunnar

Deila:

Gengi Síldarvinnslunnar hækkaði um 3,51% að áliðnum degi í gær í 327 milljón króna viðskiptum. Hlutabréf félagsins hafa hækkað mikið síðustu daga í aðdraganda birtingar uppgjörs.

Bréfin hafa hækkað um 14,6% í ágúst og 24,9% frá byrjun júlí. Félagið mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung í dag eftir lokun markaða.

 

 

Deila: