„Við vorum í mikilli lífshættu“
Þriggja manna áhöfn var hætt komin þegar eldur kom skyndilega upp í línubátnum Jakobi, sem gerður er út frá Båtsfjord í Norður-Noregi. Bílddælingurinn Jón Páll Jakobsson var skipstjóri um borð í bátnum þegar eldurinn kom upp. Í viðtali við 200 mílur lýsir hann ótrúlegri atburðarrás, þar sem óhætt er að segja að hurð hafi skollið nálægt hælum.
Þegar áhöfnin kveikti ljóskastara á efsta dekki, eftir að hafa fundið fyrir miklum hita, sáu þeir hvar kolsvartur reykur gaus upp. Þeir sáu jafnframt að björgunarbáturinn stóð í ljósum logum.
Jón Páll tók stefnuna á næstu höfn en litlu mátti muna að áhöfnin þyrfti að stökkva frá borði. „Það var fjara og þegar ég kom mér upp á bryggju og lá þar varð yfirtendrun einhverjum 10 eða 20 sekúndum seinna,“ er hafti eftir Jóni Páli. „Ég hélt ró minni allan tímann og strákarnir sem voru með mér líka. En við gerðum okkur grein fyrir að þetta yrði erfitt, við vorum í mikilli lífshættu. Ég vil ekki hugsa það til enda hvað hefði getað gerst ef við hefðum verið á öðrum stað.“
Myndin er frá höfninni í Båtsfjord í Noregi.